Platónsk ást ávaxta

Við erum öll ávextir;)

27.09.2007 20:20:01 / gella86

Ný síða:)

úúú Erlan er komin með nýja síðu, eða ný gamla;)

www.myspace.com/erla86

Addið mer nú sem vin áður en ég loka blogginu, svo þið getið nú fræðst um mig:P


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 11:49:17 / gella86

Dauð síða!!

Hér með tilkynnist það að ég er hætt að blogga!!!

Finn bara enga löngun lengur til þess, enda nóg að hanga í tölvunni og læra þessa dagana!!

Bý kannski til nýja síðu síðar...

Hins vegar ætla ég að setja inn ljóð annað slagið á ljóðasíðuna mína:P


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 10:38:40 / gella86

Ég er flutt alfarið á Selfoss

Sælt veri fólkið ætlaði að láta vita af því að ég er flutt alfarið á selfoss:) M+p voru að selja eskihlíðina ofan af mér:( Ég flyt út næstu helgi og stelpan sem keypti íbúðína fær hana afhenta þann 1 ágúst....svo maður þarf kannski að fara að tala við ömmu um gistingu annað slagið í vetur ef færðin er slæm og svona:) Já nú er minna  en mánuður í að skólinn byrji aftur, mér sem langar svo í lengra sumarfrí!!

Annars var seinasta helgi aldeilis öflug:D Fórum í bæinn á föskveldinu heim til himma og hugrúnar en siggi var þar og voru allir í singstar nema ég....ég var edrú....síðan skutlaði ég strákunum og við fórum í partý til haffa og helgu:) Skutlaði ég geira og einari niður í bæ og sigga heim nema ég þurfti að sækja geira strax og ég var búin að skutla sigga heim...hann var svo þreyttur kalllinn;)

Lau: Vaknaði eiturhress (þar sem ég var nú edrú;)) og fór með hauk og adda í búðir, verslaði mér djammbol og leðurstígvél:D Og svo var farið í ljós:) Kom heim og hafði mig til og við geiri fórum í afmæli sigga...það var sko veisla í lagi:) Bjór, grill, bolla og guli hummerinn niður í bæ:D Bara flott á því:p Fórum á glaumbar og svo hressó og svo subway...maðurinn minn virðist hafa minnkandi þrek niður í bæ, er farin að vilja fara heim bara strax nánast:/ en jæja ég hef svo sem ekkert svo mikið á móti því að fara heim með honum:D

Seinustu helgi var amma að  halda upp á 70 afmæli sitt:D Ég fór norður í helgavatn og við haukur og addi kíktum á blönduós á rúntinn og bættum við bryndísi og elínu og kíktum á bakkann. Á laugadeginum fórum við svo á hótel Lauga en amma bauð öllum nánustu ættingjum sínum í mat og svo var smá skemmtun eftir á:) Heldum svo í bústaðinn og fengum okkur smá vín:) Á sunnudeginum var svo afmæliskaffi, voða fínt og gott á Sandi:) Svo maður fór saddur og ánægður heim á leið:)


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 14:29:04 / gella86

Samantýningur:D

Va ég veit að þetta verður skrítið blogg því ég hrystist öll því mer er svo mál að pissa:(...svala fór að fylla á hraðbankann svo það verða alla vega 15 mín í að ég geti sprænt duglega!!!

Ég var í klippingu og litun ´Stofunni" hér á selfossi, geggjaður litur en klippingin á eftir að venjast held ég hafi ekki verið með svona stutt síðan ég var á lambastöðum í eldgamladaga!!! Ég held samt að þetta sleppi, hefði kannski mátt vera aðeins síðara...en kannski klippi ég mig bara alltaf svona eftir að e´g er búin að venjast þessu...alla vega nóg um hárgreiðslu mína;)

Seinasta helgi þá var háskóladjammið í hallgeirsey og fórum við geiri á fös og tjölduðum og vorum með sigga og baldri og vinnufélaga sigga og stelpum sem voru með honum, þ.á.m. var Edda :) fórum í sund á laugardeginum, fyrsta skipti sem geiri fer með mér í sund (hann hatar sund!) Svo fengum við okkur feitan borgara og svo aftur á tjaldstæðið. Það var ball og brekkusöngur um kvöldið, bara gaman:)

Þar seinasta helgi þá vorum við í bænum og maggi og jenný að keppa á gogga galvaska og ég með elvar að spígspora og mömmu...róleg helgi, ekkert djamm:) Þó karlinn minn hafi djammað bæði kvöldin...

ahhh...fékk að pissa...ég var farin að dansa um gólfið....sjétturinn hvað það var gott að losna við þetta:D

Næstu helgi verður svo farið á norðurlandið, alla leið á Sand í Aðaldal (rétt hjá húsavík) en þar ætlar amma mín að halda upp á 70 ára afmæli sitt og öll börnin og barnabörnin ætla að mæta:D Hún ætlar að bjóða liðinu á hótel Lauga að borða :D


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 16:09:01 / gella86

Seinust 2 helgar;)

Fólkið virðist alltaf streyma inn þegar ég byrja að blogga, svo ég ætla að vona það núna líka...annars blogga ég bara áfram;) Ég er að vinna út í hveragerði núna, sem er bara þrælfínt:) Fyrir utan að það mætti vera aðeins meira að gera en jæja....maður hefur nógan tíma til að vafra um á netinu:p

Helgin var fín, fórum suður á fös og ég fór eiginlega að sofa leið og við komum....

lau: vaknaði og þreyf aðeins, fór með elvar í mosó á gogga galvaska en jenný og maggi voru að keppa, maggi vann silfur í kúlu og spjóti og brons í boðhlaupi og jenný vann brons í spjóti:D Hörkuduglegt lið þar á ferð;) Síðan sótti ég geira í hafnarfjörðinn og við höfðum okkur tiil fyrir kvöldmatarboðið hjá himma og hugrúnu:) Rosagott pasta og svo var partý eftir á:) Vorum í partýinu til þrjúog fórum þá niður í bæ í hálftíma og svo heim, geiri minn var svo þreyttur:(....en æi það var bara gott að komast heim í háttinn:)

Bíladagahelgin: Lögðum í hann á fös og pikkuðum hauk uppí, komum við í lambakjötshrygg hjá mömmu og svo var haldið á burn outið á ak. það var sko gamna:) en svo á tjaldstæðinu var 2 klst biðröð eftir miða inn:( jeminn sumir urðu nett pirraðir....en allt fór þetta vel og íris, rúdolf og kobbi hjálpuðu okkur að tjalda tjaldvagninum upp:) Síðan var drukkið og djúsað :)

Lau: þynnka,sól, heimsókn, sund með höllu, grillað með geira upp á tjaldstæði, geiri fekk að fara í sturtu hja´elínu:) fórum út að borða í tilefni þess að baldur var að halda upp á daginn;) síðan var haldið upp á tjaldstæði, ég rúntaði um með pabba sem var í landi í smá tíma og svo upp á tjaldstæði að drekka og svo niður í bæ:) og aftur upp á tjaldstæði þar sem var tjúttað með balla bróður geira og fleirum...alla vega til 11 en sumir voru til tvö!!!;)

sun: dryfið sig af stað aftur heim....vorum komin á selfoss um hálf þrjú:(


» 9 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 12:22:38 / gella86

Smá fréttir

Að blogga í vinnunni er mín yðja;) Nei tók bara eftir því hversu langt er á milli blogganna minna og ákvað að skella einu stuttu inn:) Annars er maður pínu tómur þegar maður er stressaður yfir eitthverju fólki sem gæti komið inn:p lol

Við geiri erum að leggja í hann á ak. eftir 2 tíma:D Vúhúuu....bara gaman:) Bíladagar:) Geiri er búin að taka tjaldvagn á leigu og fær benz-inn hjá pabba sinum til að draga:) Svo verður stoppað í mat hjá mömmu og hún ætlar að hafa til grillkjöt svo við getum grillað á lau:) Allir að fara og það verður mega gaman á tjaldstæðinu;)

Seinustu helgi var farið til keflavíkur í afmælispartý Odds....fékk far með rúdolf og írisi og geiri minn fór í partý til Baldurs...en oddur helt frábært partý:) Við erum að tala um bollu, skot og helling af bjór:D plús subway bátar á fati og fínerí:) Svo var farið á trix í splash partý:) og svo haldið heim:)

Er farin í helgarfrí:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 19:46:49 / gella86

Samantýningur

Jæja tími á eitt stutt og hnitmaðað blogg;)....við geiri vorum sko að fá netið hérna á selfossi:D Annars er hann að vaska upp núna:P ég samt þreyf allt baðherbergið og setti í vél og hengdi út og eldaði folaldafille:D bara gaman að hafa allt hreint í kringum sig:)

Annars er maður alltaf að vinna í sparisjóðinum hér á fossinum, fer yfir í hveragerði um miðjan júní....þetta er fín vinna, en ég er eitthvað treg að ná þessu:( ...en kemur allt með tímanum;)

í gær og fyrradag vorum við málfríður (stelpan sem vinnur með mér) á námskeið í tengslum við bankadótið....voða gaman, alla vega frír matur og vöflur og svona:D Þegar ég kom svo heim í gær þá fórum við geiri að hjálpa betu sysur hans og manni að flytja (man bara hvað hennar fyrrverandi heitir, hef hitt hann á djamminu og var sett í pössun hjá honum einu sinni;) gulla, júlli og vinur betu voru líka að aðstoða:) margar hendur vinna lett verk:)

um helgina þá fór ég í útskriftarveislu guðrúnar, á djammið, í búðir, í partý í hafnarfirðinum, í kveðjupartý hjá jóhönnu kristbjörgu, í mat á álftanesið, í partý til siggu toll, niður í bæ með stelpunum og svo mikil þynnka:P en þetta var góð helgi og viðburðarrík:)

Ég náði tölvunarfræðinni með ágætiseinkunn og er því búin með 1 árið í HR!!!:) bara geggjað, búin að ná öllu, og ætla að halda ótrauð áfram og reyna mitt besta til að klára þetta nám:D

annars fórum ég og haukur norður helgina áður, ég hjálpaði til við sauðburðinn og slappaði af:)

núna á morgun er stefnan svo tekin norður á sjómannadagsskemmtunina á skagaströndinni, sem er bara gaman:) ball og family meeting:D geiri kemur líka með, og haukur og elin fá far;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 10:22:44 / gella86

Góðan daginn allan daginn:)

Blessað veri fólkið á þessum fagra sumardegi;)....ég er reyndar ógeðslega úldin og þreytt...en ég vaknaði alla vega núna í skólann:p

fös (fyrir 10 dögum;)) fórum ég, geiri, baldur, hugrún, hilmar og haffi á sailish:) Það var drullugaman meðan baldur var uppi á sviði en síðan var þetta bara eins og seinast:(...þannig að spurning hvort maður fari aftur fyrr en fleiri bjóðast til að fara upp á svið:p Haldið var í partý til haffa og síðan fórum ég, geiri, denis og haffi niður í bæ á hressó. Haffi átti heima á klósettinu;)....hehe...í símanum:) denis dreyf sig á sólon með ítölum þegar líða tók á nóttina og við geiri fórum yfir á glaumbar;) Síðan var farið og fengið sér pizzu og kók og tekin taxi heim:)

lau: geiri og baldur eyddu deginum í að flytja á meðan ég lærði og horfði á TV;) Síðan sótti edda mig um átta og við fórum á sólon í 20 afmæli hjalla, frænda eddu:) Þar var nóg af fríu áfengi;) Mér var hent út af staðnum fyrir að æla ....ath samt ég náði á klósettið með því að riðjast fram fyrri röðina;) Geiri kom svo og sótti mig (kl var rúmlega eitt;)) og baldur og siggi voru með....síðan fóru þessir þrír kallmenn heim til baldurs að horfa á spólu meðan ég svaf værum blundi:)

mán: pabbi kom og fór á sjóinn. Ég pikkaði baldur upp og við fórum á selfoss til geira. Fórum á kaffihús og drengirnir drukku og ég sötraði verkjatöflur...við geri fórum svo heim um tvo en þegar heim var komið voru júlli og gulla líka að sötra:)....enda frídagur daginn eftir;)

þrið (1 maí): vaknað var um hádegi og dryfið sig að sækja baldur og svo að flytja í nýju íbúðina hans geira:) Strákarnir sáu um burðinn og ég um að raða í skápa og koma hinum ýmsu smáhlutum fyrir;) Þetta gekk allt saman glimrandi vel. Fórum svo í mat til gullu og svo heim aftur og klárað að gera klárt;) við baldur fórum svo suður og lentum líka í þessari þoku, maður sá rétt svo í næstu stiku á hellisheiðinni:(

fim: fór til ömmu, geiri sótti mig þangað og fórum í íkea að versla eldhússtóla:) Síðan til hilmars og hugrúnar þar sem kötturinn var eitthvað að angra mig:( og svo heim til mín þar sem við horfðum á aðþrengdar eiginkonur:)

fös: brunaði á selfoss þar sem maðurinn minn var að klára að gera allt klárt, ég hjálpaði sma, annars átti gító hero leikurinn hug minn allan;) geiri eldaði svo fyrir okkur og baldur kom. Upp úr miðnætti komu svo íris og rúdolf í heimsókn:) og við stelpurnar fórum í fótboltaspilið hans geira og svo bættust rúdolf og geiri við:) Spiluðum svo eitthvern spurningaleik til fjögur um nóttina.

lau: geiri bað mig að vekja sig svo hann gæti klárað að hafa allt til áður en liðið kæmi....ég vakti hann um eitt leytið....og maðurinn var pínu úrillur;) komumst síðan að því að það hefði verið nóg að vakna um þrjú:p alla vega býst ég við því að baldur hafi komið:p (á heima hjá okkur;)) já og svo fórum við 3 að fa okkur geggjaða pizzu á pakkhúsinu. Spilað var gítóhero endalaust. jón nágranni geria leit inn. Partýið byrjaði síðan þegar hilmar, hugrún og haffi komu með kampavín og kaffikönnu:) bryndís og kobbi komu með góða skapið:) axel og frændi geira komu einnig. síðan var haldið niður á pakkhús og dansað. denis kom við mikinn fögnuð partýgesta:) hilmar fylgi hugrúnu heim á hótel og kom aftur til að djamma meira. Farið var í partý til bóbó. Strákarnir stungu mig af og ég djammaði með bróður baldurs honum eyþóri sem er bara hinn fínasti strákur:) Alla vega fylgdi hann mer heim með því skilyrði að koma við á pakkhúsinu og ég myndi kaupa bjór fyrir hann því hann er 18 ára gutt....en risastór og ljóshærður;) Hann ætlar meðal annars á wacken í sumar (beint til ykkar auju og siggu)...alla vega kom heim og komst að þ´vi að geiri fór án þess að kveðja því hann var í fýlu við mig því hann helt að ég hefði farið viljandi á undan í þetta partý hja bóbó....sem var svo ekki rétt....því e´g helt að hann væri komin þangað:( en allt leystist þetta á endanum og ég sofnaði föstum svefni með snakk í hendinni:)

sun: talandi um þynnku!!!!:( liðið fór að týna sig upp úr hádegi og við geiri sofnuðum aftur....kl fimm kemur svo familyan hans og við steinsofandi:( m+p, systa + family.....geiri hunskast á lappir og tekur sma´til og ég rolast rétt fram....þau stoppuðu ekkert svo lengi svo við gátum horft á TV og borðað í friði:) ég helt svo heim á leið um miðnætti.


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 10:59:27 / gella86

Myndirnar sem ég lofaði fyrir nokkrum dögum:)

Veit ég var búin að lofa myndum af mér án teinanna á mán eða þri;) En nú er fim morgun....svo ekkert svo mikið of seint;) Fáið örugglega betri myndir en þessar sem eru hérna úr webcam-inu í næstu viku;) Því geiri minn heldur innflutningspartý á lau:) Og við erum að tala um flotta íbúð:D óJá...við baldur fórum á mán á selfoss og leiðin lá á kaffihús þar sem drengirnir drukku en ég ég sötraði vatn með verkjatöflum:p...þeir þekktu nánast alla þarna...:) Svo á þri var flutt inn í íbúðina...ég raðaði í eldhússkápana (pottþétt vitlaust...alla vega opnuðu mamma geira og hann sjálfur annan skáp og þann sama þegar þau ætluðu að fá sér vatnsglas) og drenigirnir báru inn hafurtaskið:)

Fáið kannski helgarbloggið frá seinustu helgi síðar....er að fara að læra;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 20:02:41 / gella86

Restin af helginni...+forritun

Ég er að deyja úr spennu yfir að fá niðurstöður úr lokaprófunum!!!! ógeðslega erfitt að bíða svona, eigum að fá á morgun eða hinn alla vega úr eðlisfræðinni!! Hitt kemur líklega í næstu viku...en ég er nokkuð viss um að hafa náð þeim...svo:)

Lau: Eftir mikla þynnku og leti og hausverk og þreytu....komu baldur og geiri og drógu mig út úr húsi því planið var að fara í grillpartý heim til Hröbbu. Bryndís og Hrabba voru nýkomnar af skautum og voru vægast sagt úldnar;) En baldur hafði keypt líka þetta fína lambafille sem rann ekkert smá ljúft niður:) mumm....finn bragðið núna...hehe....eða svona næstum, alla vega af súkkulaðinu sem ég er að borða;) Alla vega svo var byrjað að drekka, spilað á gítarinn góða og svo í party og co....við geiri vorum saman í liði og töpuðum við með þónokkrum mun fyrr baldri, hröbbu og bjarna....svo komu 3 strákar í viðbót og við drukkum...stemmingin var samt ekki mikil....ég benti fólki á að það væri hommi á meðal vor;)...já ég veit...ég og minn stóri munnur;) farið var niður í bæ, en þar splittaðist hópurinn, bryndís, hrabba og bjarni fóru á sólon en ég baldur og geiri á glaumbar:) Þar voru félagar þeirra, haffi og denis og skáluðum við í skotum saman:) Svo á Hressó þar sem maður hitti albinóan á blönduósi (ehhe...ég man ekki hvað hann heitir;) hversu gott er minni mitt;)) og já kærustuna hans sem augljóslega vantaði eitthvað í...en það var hægt að horfa á bobbingana hennar:p Svo var aftur haldið á glaumbar... og ég fékk pössun frá dyraverði þar sem var á frívakt...geiri fór á klósettið að tala við baldur;)... og svo kom siggi rúnar og sótti okkur:)

Sun: þynnka, ergelsi og snúningar...pabbi var nefnilega að koma í bæinn og fara út á sjó...og ég þurfti að kaupa inniskó á hann, haukur að vaska upp og geiri að skutla baldri til keflavíkur eitthvað út af vinnunni;) En ja´svo var farið í mat til ömmu, geggjaðgóður léttreyktur lambahryggur:)

Mán: Byrjaði í nýjum kúrs, tölvunarfræði 2....þar á maður að læra að forrita;) sem er nokkuð skemmtilegt þegar maður getur gert eitthvað sniðugt:D

Fór í sund með siggu í dag og já sundglerugun mín mýgláku svo ég þurfti að synda bringusund með hausinn upp úr eða baksund...jeminn...það var sérstakt;)

Endurnýjaði vinadótið á síðunni;) Löngukomin timi til....

Geiri er að flytja hafurtaskið úr hafnarfirðinum á selfoss á lau og við baldur hjálpum til;) svo flytur hann inn á mið:D Og svo innflutningspartý;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 14:31:28 / gella86

Lokaprófin búin og djammið tekið við:)

Jebbítíjeb:) Búin í lokaprófum:) alla vega í bili;) ohh...hvað það var gott að enda þetta á léttu prófi;) Annars er ég svo þunn núna að ég veit varla hvað ég heiti, þarf að senda hauk msn  boð í hvert skipti sem mér vantar eitthvað, því geiri fór að kaupa gjöf handa mér og sér;) En já eftir próf þá var farið á dominos og pantað sér 2 stórar pizzur...maður verður að fagna svona áfanga i lífi sínu:p:D við fórum svo heim og rifum í okkur og geiri kom og hneykslaðist á því að við réðum bara við 2 sneiðar hvort!!;) en ég vissi að þær kæmu sér vel í dag:) geiri fór, ívar og jón magnús komu og sóttu mig og við fórum til silju í bekkjapartý:) það var sko gaman, klappað þegar við komum og okkur sveitafólkinu fagnað því jú þetta var fyrsta bekkjapartýið sem við mættum í;) talaði við helling af fólki sem ég hef ekkert talað við og svo talaði ég betur við fólk sem ég hef talað við:) íris sótti mig ´siðan og við fórum í ásbyrgi á broadway þar sem próflokadjammið var:) Svo var farið á sólon og hittum ívar og hann kom með...dönsuðum og dönsuðum miera. Svo bara öllum að óvörum koma geiri, baldur og siggi rúnar....uss ég ætlaði að fá sjokk....hann ætlaði sko bara að horfa á spólu og fara svo heim að sofa...en já...það breyttist...dönsuðum smá við þá og ég dró síðan írisi út af þessum stað....þetta var stelpudjamm og átti að vera það;) fórum á vegamót, hverfisbarinn, rex, viktor og glaumbar...stoppuðum stutt á öllum stöðum nema glaumbar þar sátum við og drukkum og svo dönsuðum við á fámennu gólfinu;) Svo var bara farið heim rött rúmlega þrjú;) fámennt í bænum nema á sólon og vegamótum...áttum bara ekkert heima á vegamótum, horft á okkur eins og við værum eitthverjir furðufuglar...reyndar var rigning úti;) sem þýðir að kannski var hárið út um allt:p

Annað sem hefur gerst er ekki niett;) hehe...ég er búin að læra frá mér allt vit....orðum kexrugluð í gær....hló að öllu og geggjað asnalegur hlátur....spennufall eða eitthvað, var nett stressuð fyirr þetta kerfisgreiningapróf sem já ég þurfti ekkert að vera;)

Í kvöld er svo stefnan tekin á gott djamm;) Partý hja hröbbu og hálft fylkis fótboltaliðið að mæta:P mmm....verður bara gaman að tala við þá....ætla að tjékka á stöðunni í fótboltanum svo ég sé nú ekki að segja nokkra vitleysu8)

en já ef þið eruð jafn þunn og ég og komist ekki út úr rúmi þá er ágætisafþreying að horfa á páskaþáttinn af south park....ýmsum spuringum svarað hvað varðar hvernig páskakaninan tengist krossfestingu jesú;) http://www.southparkx.net/stream/episode-1105-stream


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 20:36:48 / gella86

Lokaprófin alveg að verða búin:)

Eru leynivinirnir að bíða eftir að vita hvernig mér gekk í stæfr.prófinu;) mÉr gekk framar vonum:) Mætti kl 8 í morgun og ívar kom og hjálpaði mér það var rosagott því það voru mjög svipuð dæmi á sýniprófinu og lokaprófinu sjálfu:) Gat reyndar ekki eitt 15% dæmi og ekki bónusdæmið en who cares;) Ég er sátt...alla vega miðað við hvað ég lærði langt fram eftir nóttu og vaknaði snemma, samdi ljóð um það og setti á ´ljóðasíðuna:) En ja´hver hefði haldið það að ég yrði fyrst út úr prófi;) Ég var að drepast úr þreytu og nennti ómögulega að pæla meira í þessu og fór bara korter yfir tólf;) prófið átti að vera frá 9-14:) Alla vega rosagott að koma þessu frá:)

F'or svo í kringluna og fékk me´r bræðing og sigga hrefna kom og við skipulögðum kaup á góðri afmælisgjöf handa geira, en það er hernaðarleyndamál sem bara nokkrir vita;) En ég veit annað miklu meira spennandi leyndamál:)  en það er líka hernaðarleyndamál, hehe...ég er samt að springa úr gleði....en það kemur ekki bofs úr mér;) ég kannski gleymi þessu bara:p Við sigga fórum svo í sund og syntum ágætlega og láum í heitapottinum og stykknuðum, alla vega svimaði okkur þegar við fórum upp úr:S En þetta var sjúkt þægilegt:) S'iðan átti ég gott samtal við írisi og það verður tekið stelpudjamm á fös hjá okkur:D Hlakka bara til:) Talaði við mömmu, og pabbi kom í land í gær!!og enginn að segja mér það8|:!: bölvað sé það...hann verður 40 ára á morgun:) til hamingju með það pabbi :) mamma hans geira á líka afmæli í dag og á hinn á Rúdolf afmæli:) allt fullt af afmælum:) Mamma heldur smá surprise veislu fyirr hann....eins gott að hann er ekki að lesa;) Hann nefnilega þolir ekki surprise;) Ég er svo bara á leiðinni í ljós, gera mig pínu sæta fyrir helgina:)

Seinustu helgi var ég nú bara að læra....:( og svo kom geiri á lau kvöldið og ég skutlaði honum og sigga rúnari í hafnarfjörðinn í partý og fór heim að læra til þrjú á laukveldi!!! haukur hélt að ég væri að bíða eftir geira, eða þá geðveiik, eða bæði.....hehe...ég vel engan þessara kosta:)

Stjörnuspáin í dag er svo sönn að það hálfa væri nóg:) ,,Farðu vel yfir öll smáatriði sem þú upplifir, leggðu þau á minnið og komdu þeim frá þér á skýran hátt án þess að hika. Ekki láta annir koma niður á störfum þínum eða einkalífi næstu daga. Hér kemur fram að þú ert um það bil að ljúka erindum sem tengjast starfi/námi og að erindið endar farsællega á sama tíma og miklir fjármunir birtast hér."

Setti inn nýja skoðanakönnun;) bið ykkur vinsamlegast að svar henni;) Ég hætti með hina þegar mér var farið að lítast á svarið;)




» 5 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 00:40:21 / gella86

Svarið þessu litlu blómin mín:)

Af því að ég er í hundleiðilegum lokaprofum núna:( Alveg að skíta á mig, sjetturinn, var að segja ívari að ég hefði getað þetta og þetta dæmi og hann alveg....ahm...ég held samt að þau muni ekki gilda svona mikið, þetta er svo létt!!!:( ohh...ekki gott að heyra það nokkrum klst fyrir próf:) Hugsið vel til ´mín því ég er að fara í 5 klst stæfrpróf :S en þetta reddast eins og geiri segir:) ég ætla að blogga seinna, því ég á enn eftir að lesa nokkuð góðan hluta:( þannig að ef þið viljið stytta mér stundir í þessu leiðilega ástandi þá endilega svarið þessum spurningum:) og já þú líka ásgeir, komin timi til:)

1. Hvað heitir þú?

2. Hvað ertu gamall/gömul ?

3. Ertu á lausu eða föstu?

4. Hvaða tónlist hlustarðu mest á?

5. Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú sérð mig?

6. Hvaða 5 hlutir minna þig á mig?

7. Ef ég myndi biðja þig um msn-ið þitt, hverju myndirðu svara?

8. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?

9. Hver er "idolið" þitt?

10. Hvern þykir þér vænst um?

11. Ertu ástfangin/n ?

12. Hefurðu verið ástfangin/n ?

13. Hver er heitasti skemmtistaðurinn í dag?

auka: Er ég ekki alveg ógeðlsega dugleg að læra svona stanslaust í þrjár og hálfa viku?


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 00:47:53 / gella86

4 bestu vinir mínir:)....vinkonur....

Do You Really Know Your Top 4?

1. Auður
2. Bryndís
3. Íris
4. Sirrý


PUT AN X IN THE CORRECT ONE!

Who is Blood related to you?
[ ] one
[ ] two
[ ] three
[ ] four
[ none of the above
hef ekki glóru;) alla vega ekki auja...

WHO'S BEEN TO YOUR HOUSE
[x] one
[x] two
[x] three
[x] four
[ ] none
but not to the same one...

Who have you known the longest?
Bryndísi og írisi(2og3)

Who have you known the shortest?
það er umdeilanlegt...eiginlega auju (1)

- FRIEND NUMBER ONE- -

1.When is the last time you talked to him/her?
humm...föstudagdagskvöldið.

2. Do you trust him/her?
jÁ ég held að það sé óhætt að segja það aðég treysti auju minni 100%

3. Would you do anything for her/him?
Ekki alveg en ég myndi alla vega reyna að gera ýmislegt handa henni;)

4. Do you talk to him/her everyday?
oftast í hrunum, 2 í viku eða svo og ´þá 2 sama daginn svo í rauninni 4 sinnum í viku;)

- - FRIEND NUMBER TWO - -

1. Do they live close to you?
nei get ekki sagt það....alla vega ekki lengur;)

2. How long have you known them?
síðan við vorum 6 ára:)

3. When is the last time you saw this person?
æi...það er svolítið langt síðan, 27 mars....

4. Do they have pets?
júbbs....sveitin er full af dýrum:) og gæludýrum:)

5. Do you know their parents?
hef nú séð hundinn hennar en já ómögulegt fyrir mig að muna hvað hann heitir....

6. Do you talk everyday?
nei en mjög nálægt því alla vega einu sinni....

- - FRIEND NUMBER THREE - -

1. How did you meet this person?
í 1 bekk á húnavöllum, vorum saman í bekk:)

2. Where does this person live?
í grafarvoginum rétt hjá spönginni í húsi nr. 26;)

4. When was the last time you talked to her/him?
6 apríl !!! (alltof langt síðan:(

5. Do you enjoy spending time with him/her?
Já það má nú segja það:) hún er svo góð og fyndin stelpa:)

------FRIEND NUMBER 4--------

2. Do you know this person's parents?
Alla vega mömmu hennar, hef séð pabba sirrýjar 2 sinnum eða svo...

3. Is this person taller than you?


4. What do you think about this person?
sirrý er hreint og beint yndisleg manneskja sem hlustar svo vel og skilur mann....vil bara að hún verði hamingjusamasta mannekja í heiminum:)
5. How long have you known each other?
hittumst á skólasetningu mh á fyrsta árinu okkar þar:) hún settist hliðin á ´mér og við byrjuðum að spjalla saman en urðum nú ekki beint vinkonur fyrr en nokkrum árum efitr það;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 15:44:43 / gella86

Komin með vinnu, er í lokaprófum og svo ánægð með lífið:)

Hvar er einbeytingin mín, sem ég er búin að hafa seinustu 2 vikur!!!! Plís komdu aftur, ég þarfnast þín!!!!:( þarf að fara að byrja að læra undir stæfr.prófið mitt:(

En já það er skemmst frá því að segja að ég náði fjármálaverkfræðiprófinu (sem ég tuðaði um í seinustu færslu);) Bara ógeðslega ánægð með það:) hefði ekki nennt að fara í upptökupróf í því;) Var í eðlfr.prófi á þriðjudaginn var, gekk svona lala en vonandi næ ég:) Svo er stæ á þri og kerfisgreining á fös á þá byrja ég í 3 vikna kúrs í tölvufræði og svo bara búin:) þann 11 maí!!! Hlakka endalaust til:D Búin að fá vinnu í sparisjóðinum á selfossi:D allt góðum samböndum að þakka og kannski smá að ég sé í þessu námi;) Þannig að ég mun búa á selfossi hjá ástkærum manni mínum í nýju íbúðinni hans sem ég er ekki enn búin að líta augum en það kemur að því eitthverjir 20 dagar í það að geiri fái hana afhenta:) Byrja að vinna strax 14 maí, peningagræðgin alveg að drepa mig:)

Og já við skulum ekkert láta staðarnumið með góðar fréttir, þannig er mál með vexti að það eru nánast öruggt að ég losni við teinana þann 30 apríl!!!:) Fæ að vita það þann 18...smá vesen með hliðarskakt bit en ég er svo dugleg að nota teyjurnar að ég hef vart trú á öðru en það takist að laga það fyrir þennan tíma;)

ójá ég er í góðu skapi:) Fór til geira á mið eftir kvöldmat (og próf) og var hjá veika kallinum ´mínum þangað til í gærkveldi um miðnætti drattaðist ég heim...þessir dagar einkenndust af svefni, sjónvarpsglápi, 2 rifrildum og 2 sættumst og góðum mat:) lol

Páskarnir voru alltof fl´jótir að líða:( lærði eins og bersekkur, borðaði eins og fíll og svaf eins og letidýr;) Passaði einnig elvar og fór í fjósið að gefa kindunum, djöfull geta þær étið núna;) ég hugsa samt að ég fari í enduðum maí norður til að hjálpa til eina helgi við sauðburð, það er bara svo gaman að sjá þessi litlu kríli koma í heiminn:)

Ég skellti inn einu ljóði fyrir áhugasama:)...


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Bland í poka